Skipulagning brúðkaupsferðar til Chicago í mars 2007
Tímasetning
epsilon-grend um 24. mars 2007. Til gamans má geta þess að Kári og Bridget munu gifta sig þennan dag n.s. (lesist næsten sikkert) og ef við verðum svo heppin að fá boðskort verður reynt að kíkja í veisluna.
Gisting
Við þurfum að redda gistingu. Best væri ef allur hópurinn gæti verið á sama stað því það myndast svo skemmtileg stemning í tengslum við brúðkaup. Stelpurnar geta fléttað hárið á hvor annarri en strákarnir geta drukkið bjór.
Brúðhjónin (nánar tiltekið brúðurin) hafa verið svo hugulsöm að taka frá herbergi í tveimur nálægum hótelum.
- The Margarita European Inn Gistiheimilið er beint fyrir ofan Va Pensiero, þar sem veislan verður. Þar er hægt að fá herbergi allt niður í $85 án skatts (reyndar stendur $79 á heimasíðunni en verðin hækka 1. mars) ef menn sætta sig við European Style, sem þýðir að baðherbergi eru sameiginleg. Samkvæmt nýlegum njósnaleiðangri virðist sem hver gangur sé með tvö sameiginleg baðherbergi (eitt fyrir hvort kyn), sem samanstendur af fjórum klósettklefum, baði og sturtu. Þessi kostur er kannski ekki svo slæmur ef Kavosingar sjá til þess að vera á sama gangi, svo þeir deili aðeins baðherbergjum sín á milli, eins og reyndar var á Kavos. American Style herbergi eru töluvert dýrari og fylgir þó hvorki með hamborgara, franskar eða fría áfyllingu á gosi.
- Hilton Garden Inn Þetta hótel er í 600 metra fjarlægð frá Va Pensiero. Tekin hafa verið frá bæði herbergi með king size rúmum og tveimur twin size rúmum. Þessi herbergi fást með afslætti ef minnst er á Tenner-Ragnarsson wedding við pöntun. Verðin eru þá $149 og $159 á nóttina. Kannski geta fleiri en tveir verið í double twin herbergjunum?
Vert er að kanna fleiri möguleika, eins og til dæmis Best Western, og þá er tilvalið að bæta þeim við hér.
Markverðir staðir
Brúðkaupið
Kári og Bridget verða gefin saman 24. mars kl. 15 í Kirkju Heilags Markúsar í Evanston. Eftir athöfnina verður gestamóttaka á veitingastaðnum Va Pensiero.
- Kort sem sýnir leiðina frá Margarita Inn að Kirkju Heilags Markúsar.
- Kort sem sýnir leiðina frá Kirkju Heilags Markúsar til Va Pensiero.
- Kort sem sýnir leiðina frá Va Pensiero til Margarita Inn.
Ferðamáti og upplýsingar
- Vonandi beint flug frá Kaupmannahöfn.
- Frá Stokkhólmi er boðið uppá beint flug til Chicago O'Hare flugvallarins.
- Frá Reykjavík virðist vænlegast að keyra til Keflavíkur og fljúga þaðan til Minneapolis og svo áfram til Chicago. Gæta skal að því að fara þarf í gegnum toll og vegabréfaskoðun áður en farið er í tengiflugið. Þess vegna er ráðlegt að hafa þrjá tíma milli fluga. Einnig má skoða möguleikann á því að fljúga fyrst til Lundúna og þaðan til Chicago, en þetta virðist vera dýrari kostur.
Ekki gleyma!
Hverjir ætla að mæta?
Það gæti verið gaman að sjá hverjir eru að hugsa um að koma. Vinsamlegast skráið ykkur hér að neðan ásamt líkindum á mætingu og áætluðum ferðadagsetningum.
- Kristján og Stella, mætum n.s. (Erum komin með pössun og allt!) fim 22. mars -- mán 26. mars
- Stefán mætir og verður í USA fim 22. mars -- þri 27. mars. Þar sem Stefán vinnur sem kerfisfræðingur þessi misserin hafa núllmengi enga merkingu og óendanlegt = 99999999.
- Þórir mætir n.s. og verður í USA fim 22. mars -- mán 26. mars
- Dísa mætir n.s. og verður í USA fim 22. mars -- mán 26. mars
Hvað á að gera í Chicago?
- Á fimmtudeginum mætum við til Chicago. Gaman væri að rölta um bæinn og gera eitthvað skemmtilegt saman, kíkja kannski á leikfangabúðir og á grænmetisveitingastaðinn fræga.
- Á föstudeginum er planið að fara á Field Museum of Natural History þar sem við fáum gæded túr.
- Á laugardeginum er brúðkaupið.
- Á sunnudeginum væri gaman að kíkja á Chicago, fara upp á topp í Sears Tower og láta Dodda sýna sér markverðustu staði bæjarins. Um kvöldið er heimboð hjá Kára og konunni hans.
- Á mánudeginum halda Skandínavar heim á leið.
Comments (0)
You don't have permission to comment on this page.